Forsíða
Velkomin á heimasíðu RT-8
Laser tag meistainn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: ritstjori   

Það fór ekki á milli mála að það var hart barist um titilinn Laser Tag meistai RT-8, en þann tilil fékk Sigurbjörn Leifur.  Munaði litlu samt á því að formaður RT-8 hefði haft af honum sigurinn, en Sigurbjörn fékk um 8.000 stig, en formaðurinn 0 stig.

Ekki voru allir á eitt sáttir með leikslok, en sumir þóttu spila eins og kerlingar, felandi sig bak við þil, haldandi um brjóst og pung.  Aðrir gripu í byssu andstæðingsins meðan að dælt var úr sinni byssu, en voru svo skotnir í bakið af öðrum byssuóðum mönnum.  Aðrir hlupu saman þannig að gleraugu fóru í nokkra hluta og enduðu í ruslinu.  Sumir þóttust vera lúmsir og mættu í þannig fötum að það var erfiðara að sjá merkin á vestinu sem skjóta þarf í.  Það var sko EKKERT gefið eftir í tryllingslegri skotgleði.
Hvernig sem á allt er litiið, var þetta skemmtileg stund og nokkuð ljóst að menn tóku vel á því, miðað við svitann á mönnum þegar flautað var til leiksloka.


Til hamingju Sigurbjörn með titilinn. 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. mars 2012 11:40
 
Alþjóðlegi Round Table dagurinn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: ritstjori   

Til hamingju með daginn strákar.

Þann 14. mars er alþjóðlegi Roundtable dagurinn og varð Round Table hreyfingin 85 ára.

Árið 1927 var Round Table stofnað af ungum manni sem hét Louis Machesi.  Á þessum 85 árum hafa þúsundir mann gengið í Round Table hreyfinguna víða um heim.  Round Table var fyrst stofnað í Norwich í UK.

Hér kemur texti úr fréttabréfi RTI.

We are very much family orientated and plan many social and other events that help many other groups 

and charities. Our efforts are concentrated mainly to alleviate the plight of underprivileged and abused 

Children across the globe. We are building schools in India, Kenya, and Nepal. We are helping children to 

have a better future in Sri Lanka, Romania, and in South Africa, and in each of the countries Round Table 

operates. We are educating children against the use of addictive substances in Cyprus and we are 

fulfilling terminally ill children’s wishes in the United Kingdom and in Germany and other countries. When 

Tsunami struck Sri Lanka and India we were there in support of those affected by this calamity. Round 

Table in addition to its community service activities is an organization that provides its members with 

many opportunities in developing business, professional and social skills  as  well  as  the  opportunity  to 

simply have fun and make new friends as well unparallel opportunity for international travel and 

friendships. We create awareness for prostate cancer by joining the Movember movement.

We thank you for joining or supporting our association. We congratulate you for your commitment and 

action you undertake for your fellow tabler, club and community.

Happy Round Table Day to all

 
Saltfiskkvöld RT4 manna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: ritstjori   

Sælir félagar.

Það er eitt laust sæti sem ég veit um í bíl hjá 10 mönnum.  Látið mig vita ef þið viljið koma með.    Einnig er verið að safna i fleiri bíla.

Frétt frá RT-4

Kæru RT-félagar,
Laugardaginn 10.mars munum við fjarkamenn halda okkar árlega Saltfiskkvöld sem löngu er orðið landsfrægt. Að venju fer það fram á veitingastaðnum Sölku á Húsavík þar sem stjanað verður við bragðlaukana með ýmsum tegundum af saltfis
kréttum.  Í fyrra mættu rúmlega 40 félagar frá 6 klúbbum í veisluna og skemmtu sér að hætti Þingeyinga

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. mars 2012 21:36
 
Laser tag Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: ritstjori   

Nú árið er liðið í aldanna skaut.  Hver skaut hvern  ?  Tja, það á eftir að koma í ljós.  Næst komandi miðvikudag, ætlum við að halda næst seinasta fundinn í Smáralindinni, nánar tekið í Laser Tag.  Er þar nokkuð víst að þar munu bræður berjast til síðasta blóð dropa.  Við tökum tvöfaldann tíma, eða 45 mínútna barátta og má besti maðurinn vinna.
Að sjálfsögðu verður boðið uppá fínann mat, en hann kemur áður en við förum að hlaupa.  Verður því spennandi að sjá, hvort þeir sem klára allt af disknum sínum, verði þyngri á fæti heldur en hinir sem jafnvel láta sér nægja að horfa á matinn.
En í þessum leik, jafnt sem öðrum, er spurt að leikslokum.  Hver verður Laser Tag snillingur í RT-8 ??  Mun hann gleyma verðlaununum ??  Þessum og mörgum öðrum spurningum verður svarað eftir hinn mikla leik sem háður verður miðvikudaginn 14. mars.

 
Íslenska Gámafélagið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: ritstjori   

Þann 29. febrúar, kíktum við til strákanna hjá Íslenska Gámafélaginu.  Þar var tekið á móti okkur með höfðinglegum hætti.  Grillað lambalæri með öllu tilheyrandi.  Hrikalega góð mæting var á fundinn.  Eftir að hafa belgt okkur út, fengum við kynningu á Íslenska Gámafélaginu.  

Fyrir 10 árum voru starfsmenn þeirra 2, en í dag eru þeir 270 sem hjá þeim starfa.  Breyddin þeirra er mikil, þeir eru að framleiða metan, breyta bílum fyrir metan, eiga dælubíl sem er fastur í Landeyjarhöfn, hafnargerð, sorphirða, endurvinnsla og fleirra.

Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir góða kynningu á frábæru fyrirtæki sem Íslenska Gámafélagið er. 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3
Joomla template by a4joomla